|
|||
2012-03-08 16:31:00 CET 2012-03-08 16:31:04 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 12 0615 og RIKV 12 0917Þriðjudaginn 13. mars kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 12 0615 og RIKV 12 0917 sem eru með gjalddaga 15. júní og 17. september 2012. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudagur 15. mars 2012. Sótt verður um að RIKV 12 0917 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á Íslandi föstudaginn 16. mars 2012. |
|||
|