|
|||
2022-06-23 18:38:06 CEST 2022-06-23 18:38:06 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarIslandsbanki hf.: Árlegt mat Fjármálaeftirlitsins á eiginfjárþörf ÍslandsbankaFjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands leggur árlega mat á áhættuþætti í starfsemi kerfislega mikilvægra fjármálafyrirtækja í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP). Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (FME) leggur árlega mat á áhættuþætti í starfsemi kerfislega mikilvægra fjármálafyrirtækja í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP). Ferlið felur m.a. í sér mat á eiginfjárþörf fjármálafyrirtækja sem leiðir af sér viðbótareiginfjárkröfu undir 2. stoð (e. Pillar 2). Niðurstaða þessa árlega ferlis fyrir Íslandsbanka liggur nú fyrir. Bankinn skal frá og með 1. júlí 2022 viðhalda viðbótareiginfjárkröfu sem nemur 2,6% af áhættugrunni, sem er hækkun um 0,1 prósentustig frá fyrra mati. Heildareiginfjárkrafa bankans, að teknu tilliti til eiginfjárauka, hækkar við það úr 17,8% í 17,9%. Nánari upplýsingar veita: Póstlisti Íslandsbanka Um Íslandsbanka Fyrirvari Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara. |
|||
|