|
|||
2009-05-12 10:57:27 CEST 2009-05-12 10:58:36 CEST REGULATED INFORMATION Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir- KröfuhafafundurVegna greiðslustöðvunar Sparisjóðs Mýrarsýslu verður fundur með lánardrottnum haldin miðvikudaginn 13. maí nk., kl. 10:00, sbr. neðangreinda auglýsingu, er birt hefur verið í tveimur dagblöðum: Tilkynning um greiðslustöðvun Sparisjóðs Mýrarsýslu og boðun fundar með lánadrottnum. Með úrskurði Héraðsdóms Vesturlands, uppkveðnum 27. apríl sl., var Sparisjóði Mýrarsýslu, kt. 610269-5409, Digranesgötu 2 í Borgarnesi, veitt heimild til greiðslustöðvunar. Hefur undirritaður lögmaður tekið að sér að vera aðstoðarmaður sparisjóðsins á greiðslustöðvunartíma. Gildir heimildin til mánudagsins 18. maí n.k., kl. 15:00, er málið verður tekið fyrir að nýju í Héraðsdómi Vesturlands, Bjarnarbraut 8, Borgarnesi. Með vísan til 13. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti og 98. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki er hér með boðað til fundar með lánardrottnum Sparisjóðs Mýrarsýslu þann 13. maí nk., kl. 10:00, í Hótel Borgarnesi, Egilsgötu 16, Borgarnesi. Er ætlunin að kynna á fundinum tillögur að aðgerðum vegna fjárhagsvanda sparisjóðsins. Nánari upplýsingar veitir undirritaður lögmaður í síma 4333000 eða 8993320, netfang sarnalds@bifrost.is Borgarnesi, 30. apríl 2009 Sigurður R. Arnalds hrl. |
|||
|