|
|||
![]() |
|||
2011-08-05 17:15:38 CEST 2011-08-05 17:16:38 CEST REGULATED INFORMATION Skipti hf. - FyrirtækjafréttirGengið frá sölu á Tæknivörum ehf.Skipti hf. hafa undirritað samning um sölu á Tæknivörum ehf. til Eignarhaldsfélagsins Tækni ehf. Með umsjón söluferlisins fór MP banki og er kaupverðið trúnaðarmál á milli aðila. Sölutap Skipta vegna sölunnar er áætlað um 400 milljónir króna. Tæknivörur var stofnað á árinu 1992 og annast félagið innflutning á ýmsum notendabúnaði tengdum fjarskiptum. Tæknivörur er umboðsaðili fyrir nokkra af stærstu framleiðendum á sviði fjarskipta s.s. Sony Ericsson, LG, Samsung og Thomson netbúnaði. Markmið Tæknivara er að vera leiðandi á sviði fjarskipta og notendabúnaðar fyrir fyrirtæki og einstaklinga. |
|||
|