2014-01-24 09:24:30 CET

2014-01-24 09:25:31 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Marel hf. - Fyrirtækjafréttir

Marel uppfærir áætlanir um afkomu á fjórða ársfjórðungi 2013


Samkvæmt bráðabirgðareikningum Marel hf. fyrir fjórða ársfjórðung 2013 eru
tekjur ársfjórðungsins í samræmi við útgefnar væntingar félagsins með fráviki í
EBIT framlegð. 

Áætlað er að tekjur fjórða ársfjórðungs 2013 muni nema 168 milljónum evra og að
EBIT framlegð nemi 4,4%. 


Frávik í áætlaðri  EBIT framlegð félagsins í ársfjórðungnum er að mestu
tilkomið vegna kostnaðar tengdum stjórnendabreytingum, hagræðingar í
birgðastýringu og niðurfærslu á birgðum. 

Handbært fé frá rekstri var óvenju sterkt í ársfjórðungnum og pantanabók
félagsins hefur hækkað lítillega frá því í ársbyrjun 2013. 

Marel hf. mun birta ársreikning sinn fyrir árið 2013 eftir lokun markaðar þann
5. febrúar 2014.  Þann 6. febrúar verður kynningarfundur með markaðsaðilum og
fjárfestum þar sem rekstrarniðurstaða félagsins verður kynnt . Á fundinum
verður einnig gerð grein fyrir framtíðarhorfum félagsins og næstu skrefum
varðandi aðlögun framkvæmdar á stefnu félagsins í átt að framtíðarmarkmiðum
þess.