|
|||
![]() |
|||
2014-03-12 17:23:28 CET 2014-03-12 17:24:30 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirUndirritun samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaðiÍ dag var skrifað undir samninga milli Lánamál ríkisins f.h. ríkissjóðs og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningnum er að viðhalda aðgengi ríkissjóðs að lánsfé og efla verðmyndun ríkisverðbréfa á eftirmarkaði. Frá og með 1. apríl 2014 hafa fimm fjármálafyrirtæki heimild til að kalla sig „aðalmiðlara með ríkisverðbréf“. Þau eru: Arion banki, Íslandsbanki, Landsbankinn, MP banki og Straumur fjárfestingabanki. Helstu atriði samningsins eru þessi: -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum með markflokka ríkisverðbréfa. -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem Lánamál ríkisins veita fyrir hönd ríkissjóðs. -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram tilboð í útboðum ríkisverðbréfa fyrir a.m.k. 100 m.kr. að nafnverði. -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka ríkisverðbréfa og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 100 m.kr. að nafnvirði í hvern flokk í NASDAQ OMX kauphöllinni á Íslandi. -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að halda verðmun kaup- og sölutilboða innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningnum. -- Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Aðalmiðlara er heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða ef tilteknum skilyrðum er fullnægt. -- Samningurinn gildir frá 1. apríl 2014 til 31. mars 2015. Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi þar sem fram koma ýtarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur aðalmiðlara ríkisverðbréfa. Frekari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson forstöðumaður hjá Lánamálum ríkisins í síma 569 9600. |
|||
|