|
|||
2009-09-30 12:27:26 CEST 2009-09-30 12:28:14 CEST REGULATED INFORMATION Alfesca hf. - Fyrirtækjafréttir- Beiðni um að hlutir Alfesca hf. verði teknir úr viðskiptumYfirtökutilboði Lur Berri Iceland ehf. til hluthafa Alfesca hf. lauk þann 17. ágúst 2009. Í kjölfarið fór fram innlausn í samræmi við gildandi reglur á hlutum í eigu hluthafa sem tilboðið beindist að en samþykktu ekki. Lur Berri Iceland ehf. og samstarfsaðilar eiga nú samtals 99,43% af útgefnu hlutafé félagsins og fara með allan atkvæðisrétt í félaginu að teknu tilliti til eigin hluta félagsins sem nema 0,57% útgefins hlutafjár. Í kjölfar beiðni frá Lur Berri Iceland ehf. og samstarfsaðilum hefur stjórn Alfesca hf. í dag óskað eftir því að hlutir félagsins verði teknir úr viðskiptum af aðallista NASDAQ OMX Iceland hf. |
|||
|