|
|||
![]() |
|||
2017-11-22 15:48:47 CET 2017-11-22 15:49:48 CET REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - ÁrsreikningurNíu mánaða uppgjör LandsvirkjunarTekjur hækka milli tímabilaHelstu atriði árshlutareiknings
Hörður Arnarson, forstjóri: „Fyrstu níu mánuðir ársins voru hagfelldir í rekstri fyrirtækisins. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði hækkaði um 29% frá sama tímabili ársins áður. Tekjur jukust, m.a. vegna þess að álverð hækkaði umtalsvert eftir að hafa verið mjög lágt á síðasta ári. Orkusala jókst um 435 Gwst á fyrstu níu mánuðunum og er áfram mikil eftirspurn eftir raforku frá Landsvirkjun. Sterkt sjóðstreymi stendur að fullu undir umfangsmiklum fjárfestingum á tímabilinu, en þó hefur hægt tímabundið á lækkun skulda á meðan á framkvæmdum við Þeistareyki og Búrfell II stendur. Þeistareykjastöð var gangsett 17. nóvember og senn líður að því að rekstur hennar fari að skila Landsvirkjun tekjum.“
|
|||
|