|
|||
2011-01-10 16:31:04 CET 2011-01-10 16:32:05 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 11 0715Fimmtudaginn 13. janúar kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokki RIKV 11 0715 sem er með gjalddaga 15. júlí 2011. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagur 17. janúar 2011. Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX á Íslandi þriðjudaginn 18. janúar 2011. |
|||
|