|
|||
2016-07-07 11:03:51 CEST 2016-07-07 11:03:51 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfumArion banki stækkar markflokka sértryggðra skuldabréfa Arion banki hf. lauk í gær, miðvikudag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 760 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,38%. Öllum tilboðum var hafnað í verðtryggða flokkinn ARION CBI 21 og óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 að þessu sinni. Heildareftirspurn í útboðinu var 1.860 m. kr. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokki sem tekinn hefur verið til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 3. ágúst næstkomandi. Það sem af er ári 2016 hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 16.100 m. kr. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 53.260 m. kr. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskipasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|