|
|||
2016-04-25 11:38:35 CEST 2016-04-25 11:38:35 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirÚtboð á sértryggðum skuldabréfum LandsbankansLandsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 26. apríl kl. 15:00. Boðnir verða til sölu tveir flokkar sértryggðra skuldabréfa sem þegar eru skráðir á Nasdaq Iceland, verðtryggði flokkurinn LBANK CBI 22 og óverðtryggði flokkurinn LBANK CB 19. Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendum óverðtryggða flokksins LBANK CB 16 gefst kostur á að selja skuldabréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfa í flokki LBANK CB 16 er fyrirfram ákveðið og miðast við ávöxtunarkröfuna 6,13% sem jafngildir verðinu 100,0 (að viðbættum áföllnum vöxtum er verðið 105,653). Verðbréfamiðlun Landsbankans hefur umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is. |
|||
|