|
|||
![]() |
|||
2015-09-25 11:05:28 CEST 2015-09-25 11:06:29 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki stækkar tvo flokka sértryggra skuldabréfaArion banki hf. lauk í gær útboði á tveimur útistandandi flokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 2.280.000.000 kr á ávöxtunarkröfunni 3,10% og verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 3.900.000.000 kr á ávöxtunarkröfunni 3,08%. Heildareftirspurn í útboðinu var 8.480.000.000 kr. Skuldabréfaflokkarnir eru verðtryggðir með vísitölu neysluverðs og hafa verið teknir til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á næsta útboð verðtryggra skuldabréfa í desember. Arion banki nýtir sértryggð skuldabréf til fjármögnunar á íbúðalánum til einstaklinga. Arion banki veitir nú verðtryggð íbúðalán á 3,90% föstum vöxtum til fimm ára og 3,85% breytilegum vöxtum. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|