2017-02-14 10:22:24 CET

2017-02-14 10:22:24 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Eimskipafélag Íslands hf. - Ársreikningur

Eimskip birtir ársreikning 2016 og uppgjör fjórða ársfjórðungs


Kynningarfundur 24. febrúar 2017

Eimskipafélag Íslands hf. birtir ársreikning fyrir árið 2016 og uppgjör fjórða
ársfjórðungs eftir lokun markaða fimmtudaginn 23. febrúar 2017. 

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon
forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og
rekstrarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir árið 2016 og uppgjör fjórða
ársfjórðungs. 

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 24. febrúar 2017 í höfuðstöðvum félagsins
að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður uppá morgunverð frá
kl. 8:15. 

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu
Eimskips, www.eimskip.is/investors. 

Fjárfestafundurinn verður sendur út í beinni útsendingu á Facebook síðu
Eimskips: www.facebook.com/Eimskip/. Fundurinn fer fram á íslensku og hefst
útsending kl. 8:30.