2012-03-15 17:52:35 CET

2012-03-15 17:53:35 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Endurgreiðsla á lánum Ríkissjóðs Íslands og Seðlabanka Íslands


Í þessum mánuði endurgreiða Ríkissjóður Íslands og Seðlabanki Íslands  116
ma.kr. af lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) og Norðurlöndunum. 

Um er að ræða fyrirframgreiðslu á 289 milljónum SDR, jafnvirði um 55,6 ma.kr.,
til AGS og 366 milljónum evra, jafnvirði um 60,5 ma.kr., til Norðurlandanna. 

Fjárhæðin sem endurgreidd er nemur rösklega 20% þeirra lána  sem tekin voru hjá
AGS og Norðurlöndunum í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og AGS. 

Aðgerðin í dag miðar að því að greiða niður lán til skemmri tíma og draga
þannig úr kostnaði við gjaldeyrisforðahald. Ákvörðun um endurgreiðslu er tekin
með hliðsjón af tiltölulega rúmri lausafjárstöðu ríkissjóðs og Seðlabankans í
erlendri mynt næstu misseri. 

Endurgreiðslan nær til gjalddaga sem falla á árinu 2013 í tilfelli AGS-lána.
Greiðslur til Norðurlandanna eru vegna gjalddaga sem falla á árunum 2014, 2015
og að hluta árið 2016. 

Lán AGS og Norðurlandanna námu í upphafi um 3,4 milljörðum evra eða sem svarar
um 564 ma.kr. miðað við núverandi gengi. Endurgreiðslan hefur ekki áhrif á
hreinar skuldir ríkissjóðs en heildarskuldir ríkissjóðs lækka um u.þ.b. 3,4% af
VLF. Erlend skuldastaða þjóðarbúsins lækkar í heild um 6,6% af VLF við þessar
breytingar en nettóskuldastaða er óbreytt. 

Meðfylgjandi er endurgreiðsluferill erlendra lána ríkissjóðs og Seðlabankans.
Þar sést að fyrirframgreiðslan léttir mjög á endurgreiðsluferli erlendra lána
næstu fjögur árin, eða til ársins 2016. 

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.