2024-07-08 18:03:05 CEST

2024-07-08 18:03:49 CEST


English Islandic
Fly Play hf. - Fyrirtækjafréttir

Fly Play hf.: Farþegum fjölgar á milli ára og hlutur PLAY á íslenska markaðinum eykst 




Farþegum fjölgar á milli ára og hlutur PLAY á íslenska markaðinum eykst 



Flugfélagið PLAY flutti 173.109 farþega í júní 2024, sem er 7,5% meira en í júní í fyrra þegar félagið flutti 160.979 farþega. Sætanýtingin í júní 2024 var 86,0%, sem er minna en á sama tíma í fyrra þegar sætanýting var 87,2%. Framboðnir sætiskílómetrar (ASK) jukust um 8,8% á milli ára og 7,3% aukning varð á seldum sætiskílómetrum (RPK).  



Nokkrir þættir hafa áhrif á að sætanýting lækkar á milli ára, en helsta ástæðan er aukið framboð á flugsætum yfir Atlantshafið frá samkeppnisaðilum. Þrátt fyrir það hafa orðið framfarir á lykilmörkuðum PLAY í Evrópu.  



Af þeim farþegum sem flugu með PLAY í júní voru 31,9% á leið frá Íslandi, 24,3% voru á leið til Íslands og 43,8% voru tengifarþegar (VIA).  



Hlutfall þeirra farþega sem flugu með PLAY frá Íslandi jókst úr 29,8% í júní í fyrra í 31,9% í júní í ár, sem sýnir áframhaldandi vöxt PLAY á íslenska markaðinum.  



Stundvísi PLAY í júní 2024 var 91,4%, sem er vel yfir 85% markmiði PLAY fyrir allt árið og talsverð bæting frá júní í fyrra þegar stundvísi var 81,2%.   



Þriggja ára afmæli og besta lággjaldaflugfélagið í Norður-Evrópu annað árið í röð 



PLAY fagnaði þriggja ára afmæli sínu 24. júní síðastliðinn, en fyrsta farþegaflug félagsins var á þeim degi til London árið 2021. Á þessum þremur árum hefur félagið vaxið hratt, úr þremur farþegaþotum árið 2021 í tíu farþegaþotur og um 500 starfsmenn árið 2024. Flugfélagið seldi flug til sjö áfangastaða árið 2021 en í ár telur leiðakerfið um 40 áfangastaði.  



Annað árið í röð var PLAY valið besta lággjaldaflugfélagið í Norður-Evrópu, samkvæmt árlegum lista World Airline Awards sem byggir á umsögnum flugfarþega. Þá hækkaði flugfélagið sig um fjögur sæti á lista yfir 100 bestu flugfélög heims, fór úr 91. sæti árið 2023 í 87. sæti árið 2024. Félagið hafnaði í þriðja sæti  yfir þau flugfélög sem höfðu tekið mestum framförum í heiminum öllum.   



Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY: 



Við erum ánægð að sjá vöxt í farþegatölunum, en hefðum viljað sjá hærri sætanýtingu. Þessa niðurstöðu má rekja til aukinnar samkeppni í flug yfir Atlantshafið og til fækkunar farþega til Íslands sem er afleiðing af öflugu markaðsstarfi sem nágrannaríki okkar hafa ráðist í. Við trúum því staðfastlega að með samhentu átaki ferðaþjónustunnar og íslenska ríkisins sé hægt að auka eftirspurnina eftir ferðum til Íslands, líkt og við höfum áður greint frá. Með réttum skilaboðum og öflugri herferð ættum við að geta laðað gesti til Íslands til að upplifa okkar stórbrotna land. 



Við erum ánægð að sjá að við erum enn að auka hlut okkar á íslenska markaðinum. Íbúar Íslands hafa tekið þjónustu okkar fagnandi og augljóst að áhersla okkar á að vera leiðandi í sólarlandaflugi frá Íslandi er að leggjast vel í markaðinn.  



Stundvísi félagsins í liðnum júní var framúrskarandi og á samstarfsfólk mitt á flugrekstrarsviði PLAY allt hrós skilið fyrir að tryggja að 91,4% flugferða okkar voru á réttum tíma.  



Okkur var svo mikill heiður sýndur í júní þegar við vorum valin besta lággjaldaflugfélag Norður-Evrópu annað árið í röð. Þá náðum við sömuleiðis aftur inn á listann yfir 100 bestu flugfélög heims og hækkuðum okkur meira segja um fjögur sæti. Þetta er afrakstur þrotlausrar vinnu starfsfólks PLAY við að veita farþegum okkar bestu þjónustu sem völ er á og ég er virkilega þakklátur fyrir þetta frábæra framlag kollega minna.“ 



Viðhengi