|
|||
![]() |
|||
2016-10-28 16:46:27 CEST 2016-10-28 16:46:27 CEST REGLERAD INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði á þremur flokkum sértryggðra skuldabréfa. Alls bárust tilboð að fjárhæð 2.540 m. kr. í útboðinu og var tilboðum tekið fyrir 720 m. kr. Seld voru skuldabréf í LBANK CBI 28 fyrir 320 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,10%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 2.060 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 2.380 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Seld voru skuldabréf í LBANK CB 19 fyrir 400 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 5,65%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 12.660 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 13.060 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Engum tilboðum var tekið í LBANK CBI 22. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 4. nóvember 2016. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [] |
|||
|