|
|||
2012-06-14 18:38:05 CEST 2012-06-14 18:39:06 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSkiptigengi í gjaldeyrisútboðiSamkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 22. maí sl. varðandi gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 20 júní nk. kom fram í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki „RIKS 33 0321“ yrði birt í lok dags 14. júní. Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er 104,498860 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 22. júní 2012 (krafa 2,90%).[1] Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100). [1]Hreint verð (e. clean price) er 101,50. |
|||
|