|
|||
![]() |
|||
2008-01-31 10:40:13 CET 2008-01-31 10:40:13 CET REGULATED INFORMATION Bakkavör Group hf. - Ársreikningur- Afkoma Bakkavör Group árið 2007Reykjavík, 31. janúar 2008 Afkoma Bakkavör Group árið 2007: Rekstrarhagnaður 13,7 milljarðar króna • Velta 186,4 ma.kr. (1,5 ma.punda) á árinu, 21% aukning, og 46,3 ma.kr. (372,3 m.punda) á fjórða ársfjórðungi, 13% aukning • Vöxtur í undirliggjandi rekstri 6,3% á árinu • EBITDA 18,5 ma.kr. (149,0 m.punda) á árinu, 1% aukning, og 4,2 ma.kr. (33,4 m.punda) á fjórða ársfjórðungi, 15% lækkun • EBITDA hlutfall 10,1% á árinu og 9,0% á fjórða ársfjórðungi • Rekstrarhagnaður (EBIT) 13,7 ma.kr. (110,0 m.punda) á árinu, 3% lækkun, og 2,9 ma.kr. (23,1 m.punda) á fjórða ársfjórðungi, 25% lækkun • Rekstrarhagnaður af starfsemi á meginlandi Evópu jókst um 128% og nam 398 m.kr. (3,2 m.punda) • Sjóðstreymi var áfram sterkt og nam handbært fé frá rekstri fyrir skatta og vexti 17,1 ma.kr. (137,8 m.punda) á árinu 2007, þrátt fyrir 17% lækkun • Hagnaður hluthafa af áframhaldandi starfsemi 5,8 ma.kr. (46,7 m.punda) á árinu 2007, 8% lækkun, og 1,3 ma.kr. (10,3 m.punda) á fjórða ársfjórðungi, 35% lækkun • Arðsemi eigin fjár 18,2% samanborið við 37% árið 2007 • Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi 2,2 pens á árinu, lækkun 15% • Félagið styrkti stöðu sína á alþjóðavettvangi með kaupum á fimm fyrirtækjum á árinu í Bretlandi, Tékklandi, Frakklandi og Kína • Tillaga stjórnar um arðgreiðslu fyrir árið 2007 er 0,55 krónur á hlut eða 55% af útgefnu hlutafé, 10% aukning Kaup á tveimur fyrirtækjum á fyrsta ársfjórðungi 2008: • Í dag tilkynnti Bakkavör upphaf starfsemi félagsins í Bandaríkjunum með kaupum á matvælaframleiðanda í Kaliforníu, auk þess sem félagið tilkynnti um kaup á grænmetisframleiðanda í Kína Ágúst Guðmundsson, forstjóri, sagði: „Á árinu 2007 stóðum við frammi fyrir erfiðustu rekstrarskilyrðum í áratugi, auk þess sem ýmsir aðrir þættir höfðu neikvæð áhrif á afkomu félagsins á árinu. Þar ber helst að nefna vöruinnköllun í byrjun árs, snarpar hækkanir á hráefnisverði, afleitt veðurfar í Bretlandi og hagræðingu í framleiðslu okkar á tilbúnum réttum. Þrátt fyrir þetta styrktum við stöðu félagsins á alþjóðavettvangi með kaupum á fimm fyrirtækjum á árinu. Þá er ánægjulegt að greina frá kaupum á tveimur fyrirtækjum til viðbótar sem tilkynnt voru í dag - annars vegar kaup á matvælaframleiðanda í Kaliforníu sem marka upphaf starfsemi okkar í Bandaríkjunum og hins vegar kaup á grænmetisframleiðanda í Kína. Við gerum ráð fyrir því að aðstæður verði áfram krefjandi á árinu 2008, en undirstöður rekstrar Bakkavarar eru traustar, sjóðstreymi sterkt og markaðsstaða góð og er félagið því vel í stakk búið til þess að takast á við krefjandi aðstæður og einbeita sér að frekari uppbyggingu á vaxandi mörkuðum fyrir fersk tilbúin matvæli út um allan heim.“ Frekari upplýsingar veita: Ágúst Guðmundsson, forstjóri Sími: +354 550 9700 Hildur Árnadóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Sími: +354 858 9706 Ásdís Pétursdóttir, fjárfestatengsl Sími: +354 858 9715 |
|||
|