|
|||
![]() |
|||
2012-06-08 17:35:38 CEST 2012-06-08 17:36:39 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 12 0917 og RIKV 12 1217Miðvikudaginn 13. júní kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 12 0917 og RIKV 12 1217 sem eru með gjalddaga 17. september og 17. desember 2012. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagur 15. júní 2012. Sótt verður um að RIKV 12 1217 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á Íslandi mánudaginn 18. júní 2012. |
|||
|