2007-12-03 22:19:30 CET

2007-12-03 22:19:30 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Alfesca hf. - Fyrirtækjafréttir

-Alfesca gerir nýjan samning við Kaupþing um viðskiptavakt


Alfesca hf. hefur gert nýjan samning við Kaupþing banka hf. um viðskiptavakt á
útgefnum hlutabréfum félagsins. 
Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins
í Kauphöll Íslands hf. 
Kaupþing skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í
Kauphöll Íslands, í hlutabréf Alfesca (A) að lágmarki 2.000.000 kr. að
nafnvirði á gengi sem Kaupþing ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og
sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1% og frávik frá síðasta viðskiptaverði
ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Kaupþing er
skuldbundið til að kaupa eða selja skal vera kr. 50.000.000,- að markaðsvirði. 

Ef óskað er frekari upplýsinga hafið samband við: 


Antony Hovanessian	Business Development Director	+33 (0) 5 58 56 74 74
		ah@alfesca.com

		
Hrefnu Ingólfsdóttur	Forstöðum. samskiptasviðs	+354 477 7000
		hi@alfesca.com