|
|||
![]() |
|||
2013-01-25 12:45:00 CET 2013-01-25 12:45:02 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 31 0124Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 31 0124 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 31 0124: Alls bárust 15 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.858 m.kr. að nafnverði. 12 tilboðum var tekið fyrir 3.558 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 95,945 (6,90% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 29. janúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 30. janúar 2013. |
|||
|