2009-11-04 20:21:03 CET

2009-11-04 20:22:03 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Marel Food Systems hf. - Fyrirtækjafréttir

Marel Food Systems tilkynnir breytingu á fyrirtækjanafni


Marel Food Systems hf. tilkynnir að frá og með 1. janúar 2010 verður nafni
fyrirtækisins breytt í Marel hf. Er þetta liður í samþættingu þeirra fyrirtækja
sem keypt hafa verið á undaförnum árum og munu þau öll sameinast undir hinu
nýja vörumerki og fyrirtækjanafni. Hin vörumerkin sem fyrirtækið hefur á að
skipa kunna að vera notuð áfram í tengslum við ákveðnar vörulínur og í
tilteknum markaðsgeirum.