2023-06-06 17:32:12 CEST

2023-06-06 17:32:12 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem flokkurinn LBANK CB 27 var boðinn til sölu.

Ellefu tilboð að fjárhæð 3.440 m. kr. að nafnverði bárust á ávöxtunarkröfunni 8,32%-8,40%. Tilboðum að fjárhæð 2.840 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 8,38%. Heildarstærð flokksins verður 27.500 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Uppgjörsdagur er 13. júní 2023.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.