|
|||
2022-07-01 10:30:00 CEST 2022-07-01 10:30:02 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki: Útboð sértryggðra skuldabréfa þann 5. júlí 2022Arion banki verður með útboð á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CB 27 þriðjudaginn 5. júlí nk. Útboð ARION CB 27 verður með hollensku fyrirkomulagi þar sem öll skuldabréfin verða seld á sama verði eða hæsta samþykkta álagi. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 12. júlí 2022. Arion banki mun ekki vera með útboð á sértryggðum skuldabréfum í ágúst. Næsta útboð verður haldið í september. Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 þann 5. júlí 2022. |
|||
|