2022-07-01 00:21:00 CEST

2022-07-01 00:21:02 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Arion Bank hf. - Innherjaupplýsingar

Arion banki: Allir fyrirvarar á kaupum Rapyd á Valitor uppfylltir - gengið verður frá kaupunum á næstu dögum


Með samþykki Samkeppniseftirlitsins þann 23. maí síðastliðinn og samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands sem nú liggur fyrir hafa allir fyrirvarar verið uppfylltir í samkomulagi Arion banka og Rapyd um kaup Rapyd á Valitor sem tilkynnt var um 1. júlí 2021. Gengið verður frá kaupunum á næstu dögum.

Væntur hagnaður Arion banka vegna sölunnar, að frádregnum sölukostnaði, er áætlaður um 5,5 milljarðar króna, miðað við gengi dagsins.