2018-01-12 16:25:21 CET

2018-01-12 16:25:51 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Íslandsbanki hf: Íslandsbanki gefur út skuldabréf fyrir 300 milljónir evra á 75 punkta álagi yfir millibankavexti í evrum


Íslandsbanki hefur í dag gefið út skuldabréf að fjárhæð 300 milljónir evra (um
38 milljarðar íslenskra króna) til 6 ára með innköllunarheimild af hálfu
útgefenda eftir 5 ár (6NC5).  Bréfið ber 1.125% fasta vexti sem jafngildir 75
punkta álagi yfir millibankavexti í evrum.

Fjórföld eftirspurn var eftir útgáfunni sem nam 1.255 milljónum evra frá 121
fjárfesti.  Skuldabréfin voru seld til fjölbreytts hóps fjárfesta, m.a. frá
Bretlandi, meginlandi Evrópu, Norðurlöndunum og Asíu.  Stefnt er að skráningu
skuldabréfanna í Kauphöllina á Írlandi þann 19. janúar 2018.

Viðskiptin marka tímamót í rekstri Íslandsbanka en um er að ræða lengstu
skuldabréfaútgáfu og bestu kjör erlendis sem íslensk fjármálastofnun hefur gefið
út frá árinu 2008.

Útgáfan verður gefin út undir 2 milljarða dollara Global Medium Term Notes
(GMTN) útgáfuramma bankans.  Grunnlýsingu GMTN rammans ásamt viðaukum má finna á
vefsíðu fjárfestatengsla: islandsbanki.is/fjarfestatengsl

Umsjónaraðilar útboðsins voru Goldman Sachs International, J.P. Morgan og
Nomura.

Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri Íslandsbanka:

"Þróun á vaxtaálagi á útistandandi skuldabréfum bankans í erlendri mynt hefur
verið einkar hagstæð síðustu misseri og er það merki um mikið traust fjárfesta
til Íslandsbanka og íslensks efnahagsumhverfis.  Útgáfan í dag ber þess svo
sannarlega merki en við erum einkar ánægð með þann mikla áhuga sem við fundum
hjá fjárfestum."


Nánari upplýsingar veita:
  * Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665




*Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð
áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert
frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur
ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur
félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu
þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis  að reiða sig ekki seinna
meir á spár um framtíðarhorfur sem gætu verið settar fram í þessari
fréttatilkynningu  þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin
út.  Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um
framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins
fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.


[]