|
|||
2010-11-16 16:39:23 CET 2010-11-16 16:40:21 CET SÄÄNNELTY TIETO Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisbréfa RIKB12 0824 og RIKB 16 1013 ásamt skiptiútboðiFöstudaginn 19. nóvember kl. 11:00 fer fram útboð hjá lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi. Boðin verða til sölu bréf í tveggja ára flokknum RIKB 12 0824 og sex ára flokknum RIKB 16 1013. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 24. nóvember 2010. Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 23. nóvember 2010. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 24. nóvember 2010. SKIPTIÚTBOÐ Aðilar eiga þess kost í útboðinu að kaupa bréf í RIKB 12 0824 og RIKB 16 1013 með sölu á RIKB 10 1210, sem fellur á gjalddaga 10. desember nk. Lánamál ríkisins kaupa RIKB 10 1210 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 100,40 (113,547260 með áföllum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 24. nóvember 2010. Til skýringar, jafngildir verðið 4,07% í flötum vöxtum. Andvirði bréfanna ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum. Þeir sem vilja nota RIKB 10 1210 sem greiðslu í útboðinu þurfa að tilkynna lánamálum ríkisins það eigi síðar en kl. 14:00 þriðjudaginn 23. nóvember 2010. |
|||
|