2016-01-26 17:05:26 CET

2016-01-26 17:05:26 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn hf. lýkur sölu sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn lauk í dag lokuðu útboði á LBANK CB 19, óverðtryggðum flokki
sértryggðra skuldabréfa sem skráður er á Nasdaq Iceland. Alls bárust tilboð að
fjárhæð 2.140 m. kr. í útboðinu og var tilboðum tekið fyrir 2.000 m. kr. á
ávöxtunarkröfunni 6,66%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 7.280 m. kr. í sama
flokki og nemur heildarstærð flokksins því 9.280 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. 

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 2. febrúar
2016 en Kvika sinnir viðskiptavakt með skuldabréf flokksins. 

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með
vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari
upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar
bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.