|
|||
![]() |
|||
2016-09-13 17:31:00 CEST 2016-09-13 17:31:00 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstöður viðbótarútgáfuÚtboð RIKB 20 0205 og RIKB 31 0124 Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 9. september sl. stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í RIKB 31 0124 fyrir 140.000.000 kr. að nafnvirði en nýttu sér ekki réttin í RIKB 20 0205. Heildarstærð RIKB 20 0205 og RIKB 31 0124 eftir útboð er nú 54.896.000.000 kr. og 95.420.400.000 kr. að nafnvirði. Uppgjör er 14. september 2016. |
|||
|