Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 4. apríl 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar og 8. maí 2024 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 26. viku 2024 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Tekið er fram að endurkaup sænskra heimildarskírteina (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi samkvæmt áætluninni er lokið. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Hlutir í eigu Arion eftir viðskipti |
24.6.2024 | 10:16:16 | 200.000 | 128,00 | 25.600.000 | 38.414.333 |
25.6.2024 | 12:58:29 | 400.000 | 128,50 | 51.400.000 | 38.814.333 |
26.6.2024 | 10:24:34 | 64.882 | 128,00 | 8.304.896 | 38.879.215 |
26.6.2024 | 11:23:47 | 200.000 | 128,00 | 25.600.000 | 39.079.215 |
26.6.2024 | 15:09:29 | 200.000 | 127,25 | 25.450.000 | 39.279.215 |
27.6.2024 | 14:31:34 | 600.000 | 128,25 | 76.950.000 | 39.879.215 |
28.6.2024 | 14:53:02 | 200.000 | 127,25 | 25.450.000 | 40.079.215 |
|
| 1.864.882 |
| 238.754.896 | 40.079.215 |
|
|
|
|
|
|
Endurkaupum á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi er lokið.
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 26 samtals 41.295.305 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 26 samtals 43.160.187 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,95% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 32.515.024 hluti og 355.086 heimildarskírteini.
Heimilt verður að kaupa allt að 365.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,025% af útgefnum hlutum og allt að 36.135.000 hluti á Íslandi, eða sem svara til 2,473% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 2,5% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 50.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.950.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2024. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 320/2022 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.