|
|||
![]() |
|||
2014-10-30 15:24:50 CET 2014-10-30 15:25:50 CET REGLERAD INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. stækkar flokk sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn hf. hefur í dag lokið sölu á sértryggðum skuldabréfum sem eru viðbót við LBANK CB 17, áður útgefinn flokk af hálfu bankans. Útgáfan er stækkuð um 1.200 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 6,3%. Áður hafði Landsbankinn gefið út 200 m.kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 1.400 m.kr. Stefnt er að töku flokksins til viðskipta á Nasdaq Iceland í síðasta lagi þann 15. desember 2014. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og Reglur nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. Nánari upplýsingar veita: Kolbrún Guðlaugsdóttir, fjárfestatengill, ir@landsbankinn.is og í síma 410 4014 Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 4011 |
|||
|