|
|||
![]() |
|||
2008-03-09 22:34:42 CET 2008-03-09 22:35:42 CET REGULATED INFORMATION Flaga Group hf. - Fyrirtækjafréttir- Afkomuviðvörun vegna virðisrýrnunar viðskiptavildarStjórn Flögu Group hf. tilkynnir í dag að félagið hefur ákveðið að færa virðisrýrnun á viðskiptavild sem mun hafa verulega neikvæð áhrif á afkomu fjórða ársfjórðungs og ársreikning ársins 2007. Áætlað er að færa virðsirýrnun að upphæð um það bil USD 11,5 milljónir á viðskiptavild í tengslum við kaup Flögu á Medcare Systems U.S. árið 2002 (nú þekkt sem Embla Systems). Virðisrýrnun verður ekki færð á viðskiptavild sem tengist kaupum félagsins á Sleeptech árið 2004 er mun sem fyrr verða meðal eigna á efnahagsreikningi félagsins. Upplýsingar sem koma fram í tilkynningu þessari eru einungis bráðabirgðamat yfir stjórnar félagsins og eru ekki byggðar á endurskoðuðum eða könnuðum niðurstöðum. Flaga Group mun birta ársreikninga sína fyrir árið 2007 þann 27. mars 2008. Frekari upplýsingar veita: David Baker, forstjóri, í síma: + 1 303 962 1780 Criss Sakala, fjármálastjóri, í síma: + 1 303 962 1781 |
|||
|