|
|||
2009-03-17 17:50:57 CET 2009-03-17 17:52:04 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirAuglýsing um útboð ríkisbréfa RIKB 10 1210, RIKB 13 0517 og RIKB 19 0226Föstudaginn 20. mars kl. 14:00 fer fram útboð í þremur flokkum ríkisbréfa með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Heildarfjárhæð þessa útboðs verður allt að 20.000 milljónum króna samtals að nafnverði í RIKB 10 1210, RIKB 13 0517 og RIKB 19 0226. Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðið verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 25. mars 2009. Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokka ríkisverðbréfa: Flokkur RIKB 10 1210 Lokagjalddagi 10.12.2010 Útistandandi fjárhæð 19.488 m.kr. Lánstími 1,7 ár Flokkur RIKB 13 0517 Lokagjalddagi 17.5.2013 Útistandandi fjárhæð 35.451 m.kr. Lánstími 4,2 ár Flokkur RIKB 19 0226 Lokagjalddagi 26.2.2019 Útistandandi fjárhæð 53.592 m.kr. Lánstími 9,9 ár Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir mun Seðlabankinn f.h. ríkissjóðs bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 24. mars. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 25. mars 2009. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633. |
|||
|