|
|||
![]() |
|||
2015-02-10 16:31:00 CET 2015-02-10 16:31:03 CET SÄÄNNELTY TIETO Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 15 0515 OG RIKV 15 0817Fimmtudaginn 12. febrúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 15 0515 og RIKV 15 0817 sem eru með gjalddaga 15. maí og 17. ágúst 2015. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 16. febrúar 2015. Sótt verður um að RIKV 15 0515 og RIKV 15 0817 verði tekin til viðskipta í NASDAQ á Íslandi þriðjudaginn 17. febrúar 2015. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|