|
|||
2015-10-30 15:51:34 CET 2015-10-30 15:52:35 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. lýkur sölu sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði á þremur flokkum sértryggðra skuldabréfa. Alls bárust tilboð að fjárhæð 3.360 m. kr. í útboðinu og var tilboðum tekið fyrir 2.620 m. kr. Seld voru skuldabréf í LBANK CB 17, óverðtryggðum flokki sem skráður er á Nasdaq Iceland, fyrir 400 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 6,25%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 1.400 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 1.800 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Seld voru skuldabréf í LBANK CB 19, óverðtryggðum flokki sem skráður er á Nasdaq Iceland, fyrir 1.280 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 6,35%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 3.760 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 5.040 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Seld voru skuldabréf í LBANK CBI 22, verðtryggðum flokki sem skráður er á Nasdaq Iceland, fyrir 940 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 2,70%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 7.740 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 8.680 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 5. nóvember 2015 en Kvika sinnir viðskiptavakt með ofangreinda flokka sértryggðra skuldabréfa. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. |
|||
|