|
|||
2016-01-08 17:34:29 CET 2016-01-08 17:34:29 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirÍslandsbanki lýkur víxlaútboðiÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 4, 5 og 6 mánaða. Tilboðum var tekið fyrir 1,12 ma. kr. en heildareftirspurn í útboðinu var 3,72 ma. kr. Seldir voru víxlar í 4 mánaða flokkinn ISLA 16 0520 að nafnvirði 380 m.kr. á 6,44% flötum vöxtum (verð 97,7957). Í 5 mánaða flokkinn ISLA 16 0616 seldust að nafnvirði 380 m.kr. á 6,49% flötum vöxtum (verð 97,3158) og í 6 mánaða flokkinn ISLA 16 0721 seldust að nafnvirði 360 m.kr. á 6,50% flötum vöxtum (verð 96,7170). Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 10,2 ma. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 15. janúar næstkomandi. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1977739] |
|||
|