|
|||
2015-12-14 19:26:57 CET 2015-12-14 19:26:57 CET SÄÄNNELTY TIETO Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. lýkur sölu sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag lokuðu útboði á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa. Alls bárust tilboð að fjárhæð 3.380 m. kr. í útboðinu og var tilboðum tekið fyrir 2.240 m. kr. Seld voru skuldabréf í LBANK CB 19, óverðtryggðum flokki sem skráður er á Nasdaq Iceland, fyrir 2.240 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 6,80%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 5.040 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 7.280 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Engum tilboðum var tekið í flokki LBANK CBI 22. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 21. desember 2015 en Kvika sinnir viðskiptavakt. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. |
|||
|