|
|||
![]() |
|||
2017-05-17 19:40:54 CEST 2017-05-17 19:40:54 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki lýkur víxlaútboðiArion banki hf. lauk í dag, miðvikudag, útboði á víxlum til átján, tólf, sex og fimm mánaða. Í heild bárust 30 tilboð upp á 5.360 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 3.260 milljónir kr. Í heild bárust 7 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 900 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,85% - 5,15%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 460 milljónir á 5,02% flötum vöxtum. Í heild bárust 13 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 3.000 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,85% - 5,15%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 2.300 milljónir á 5,10% flötum vöxtum. Í heild bárust 8 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.300 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 5,09% - 5,30%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 500 milljónir á 5,17% flötum vöxtum. Í heild bárust 2 tilboð í 18 mánaða víxilinn að fjárhæð 160 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 5,44% - 5,45%. Öllum tilboðum í 18 mánaða víxilinn var hafnað að þessu sinni. Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 19 maí. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|