|
|||
2016-03-29 12:05:16 CEST 2016-03-29 12:05:16 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirÚtboð á sértryggðum skuldabréfum LandsbankansLandsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 30. mars kl. 15:00. Boðnir verða til sölu tveir flokkar sértryggðra skuldabréfa sem þegar eru skráðir á Nasdaq Iceland, verðtryggði flokkurinn LBANK CBI 22 og óverðtryggði flokkurinn LBANK CB 19. Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur óverðtryggða flokksins LBANK CB 16 eiga þess kost selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfa í flokki LBANK CB 16 er fyrirfram ákveðið og miðast við ávöxtunarkröfuna 6,20% sem jafngildir verðinu 99,989 (að viðbættum áföllnum vöxtum er verðið 105,169). Verðbréfamiðlun Landsbankans hefur umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is. |
|||
|