|
|||
![]() |
|||
2014-12-22 10:20:34 CET 2014-12-22 10:21:34 CET REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirÚtgáfa skuldabréfsIcelandair Group hf. hefur lokið sölu á nýjum flokki óveðtryggðra skuldabréfa. Skuldabréfaflokkurinn, sem ber auðkennið ICEAIR 15 1, er til fimm ára, útgefinn í Bandaríkjadal og ber fasta 4,25% vexti sem greiðast hálfsárslega. Skuldabréf að fjárhæð 23.660.000 Bandaríkjadala voru seld innlendum fagfjárfestum þann 19. desember sl. Heildarheimild útgáfu í þessum skuldabréfaflokki er 75 milljónir Bandaríkjadala. Skuldabréfaflokkurinn verður gefinn út rafrænt og verður útgáfulýsing birt á heimasíðu Verðbréfaskráningar Íslands í fyrsta lagi þann 15. janúar 2015. Skuldabréfin verða gefin út með heimild Seðlabanka Íslands. Óskað verður eftir að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi og mun Íslandsbanki annast skráninguna. Nánari upplýsingar veitir: Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group Netfang: bogi@icelandairgroup.is Sími: 665 8801 |
|||
|