2016-08-08 18:32:47 CEST

2016-08-08 18:32:47 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur júlí 2016


Í júlí flutti félagið 491 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 18%
fleiri en í júlí á síðasta ári. Farþegafjöldinn er sá mesti í einum mánuði frá
stofnun félagsins. Sætanýtingin var 87,7% samanborið við 88,9 % í júlí í fyrra.
 Framboðsaukning á milli ára nam 22%. 

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 35 þúsund í júlí. Framboð
félagsins jókst um 14% samanborið við 2015. Sætanýting nam 71,6% og lækkaði um
5,9 prósentustig á milli ára. Skýrist það að mestu af nýjum áfangastað á
Grænlandi sem enn er verið að skapa markað fyrir. Fjöldi seldra blokktíma í
leiguflugi var sá sami og á síðasta ári.  Fraktflutningar jukust um 1% frá því
á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins jókst um 7% á milli
ára. Herbergjanýting var 90,8% samanborið við 90,4% í júlí í fyrra. 



MILLILANDAFLU   JÚL 16   JÚL 15      BR. (%)     ÁTÞ 16     ÁTÞ 15       BR. (%)
G                                                                               
--------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi         491.007  414.678          18%  2.040.371  1.714.712           19%
 farþega                                                                        
Sætanýting       87,7%    88,9%  -1,3 %-stig      82,1%      82,9%   -0,8 %-stig
Framboðnir     1.697,0  1.395,6          22%    7.519,6    6.180,6           22%
 sætiskm.                                                                       
 (ASK'000.000                                                                   
)                                                                               
                                                                                
INNANLANDSFLU   JÚL 16   JÚL 15      BR. (%)     ÁTÞ 16     ÁTÞ 15       BR. (%)
G OG                                                                            
 GRÆNLANDSFLU                                                                   
G                                                                               
--------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi          35.016   33.492           5%    178.737    171.473            4%
 farþega                                                                        
Sætanýting       71,6%    77,6%  -5,9 %-stig      71,6%      73,3%  -1,7 p%-stig
Framboðnir        22,8     20,1          14%       90,6       84,7            7%
 sætiskm.                                                                       
 (ASK'000.000                                                                   
)                                                                               
                                                                                
LEIGUFLUG       JÚL 16   JÚL 15      BR. (%)     ÁTÞ 16     ÁTÞ 15       BR. (%)
--------------------------------------------------------------------------------
Flugvélanýtin   100,0%   100,0%   0,0 %-stig     100,0%     100,0%    0,0 %-stig
g                                                                               
Seldir           2.169    2.180           0%     13.890     13.235            5%
 blokktímar                                                                     
                                                                                
FRAKTFLUTNING   JÚL 16   JÚL 15      BR. (%)     ÁTÞ 16     ÁTÞ 15       BR. (%)
AR                                                                              
--------------------------------------------------------------------------------
Seldir           8.428    8.349           1%     61.794     57.460            8%
 tonnkm.                                                                        
 (FTK´000)                                                                      
                                                                                
HÓTEL           JÚL 16   JÚL 15      BR. (%)     ÁTÞ 16     ÁTÞ 15       BR. (%)
--------------------------------------------------------------------------------
Framboðnar      45.647   42.842           7%    201.929    192.939            5%
 gistinætur                                                                     
Seldar          41.469   38.743           7%    163.134    153.105            7%
 gistinætur                                                                     
Herbergjanýti    90,8%    90,4%   0,4 %-stig      80,8%      79,4%    1,4 %-stig
ng                                                                              



Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010