|
|||
2011-10-05 18:20:21 CEST 2011-10-05 18:21:23 CEST REGULATED INFORMATION Marel hf. - FyrirtækjafréttirSigsteinn P. Grétarsson skipaður aðstoðarforstjóri Marel hf.Sigsteinn P. Grétarsson hefur verið skipaður aðstoðarforstjóri (e. Chief Operating Officer) Marel hf. Nýr starfstitill Sigsteins endurspeglar hlutverk og ábyrgðarsvið hans í framkvæmdastjórn Marel samstæðunnar, sem hann á sæti í ásamt forstjóra og fjármálastjóra fyrirtækisins. Sigsteinn mun einnig áfram vera í forsvari fyrir fyrirtækið á Íslandi. Samhliða aukinni áherslu á hlutverk Sigsteins í framkvæmdastjórn Marel mun David Wilson taka við af honum sem framkvæmdastjóri kjötiðnaðarseturs fyrirtækisins. David hefur starfað hjá fyrirtækinu í 13 ár og hefur gegnt leiðandi stöðu (sem „Senior Vice President“) hjá kjúklingaiðnaðarsetri Marel í Gainesville, Georgia, í Bandaríkjunum. |
|||
|