|
|||
![]() |
|||
2010-04-29 13:48:55 CEST 2010-04-29 13:49:55 CEST REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - ÁrsreikningurLeiðrétting - Uppgjör Nýherja fyrir fyrsta ársfjórðung 2010 - Frétt birt 2010-04-28 18:21:32Leiðrétting: Fréttatilkynning í viðhengi. Helstu niðurstöður fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2010 • Heildartekjur samstæðunnar námu 3.509 milljónum króna og eru svipaðar og í fyrsta ársfjórðungi 2009 • EBITDA í ársfjórðungnum nam 35 milljónum króna, en heildartap tímabilsins er 130 milljónir króna • Jákvæð EBITDA er af innlendum rekstri, en erlend starfsemi er í járnum. • Applicon A/S gerði mikilvægan þriggja ára samning að fjárhæð 1,8 milljarða króna, sem tryggir góða afkomu af erlendri starfsemi á árinu. Tap var á rekstri Applicon að upphæð 32 mkr í fyrsta ársfjórðungi, en útlit fyrir ágætan hagnað út árið • Fjárhagsstaða félagsins verður styrkt á næstunni m.a. með hlutafjáraukningu og sölu eigna. Þórður Sverrisson, forstjóri: „Rekstrartekjur af innlendri starfsemi Nýherja jukust um 3% frá fyrsta ársfjórðungi í fyrra og EBITDA batnaði um nær 65 milljónir. Vörusala hefur vaxið um nær fjórðung frá sama ársfjórðungi í fyrra ári og jafnvægi er að nást í hugbúnaðarráðgjöf og þjónustu. Stórir samningar Applicon A/S bættu rekstrarafkomu erlendu starfseminnar í lok ársfjórðungsins. Halli af rekstri þess félags síðustu tvo ársfjórðunga er samtals 125 mkr, en samningarnir treysta góða afkomu næstu misseri. Horfur um rekstrarafkomu félagsins eru nú jákvæðar, í kjölfar umfangsmikilla aðgerða sem ráðist hefur verið í hérlendis til að lækka kostnað, laga rekstur að markaðsaðstæðum og ná mikilvægum samningum hérlendis og erlendis. Meginverkefni Nýherja næstu mánuðina er að tryggja fjárhagslega stöðu félagsins og liggja nú fyrir tillögur stjórnar til viðskiptabanka félagsins um ráðstafanir til að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu þess með m.a. hlutafjáraukningu og sölu eigna.“ Nánari upplýsingar veitir: Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630. |
|||
|