|
|||
![]() |
|||
2017-12-08 22:28:14 CET 2017-12-08 22:29:15 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarFitch hækkar langtímalánshæfiseinkunn ríkissjóðs í ‘A’; horfur stöðugarMatsfyrirtækið Fitch Ratings tilkynnti í dag að það hefði hækkað lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins á langtímaskuldbindingum í innlendum og erlendum gjaldmiðli í „A“ úr „A-“. Þá eru horfur fyrir einkunnina sagðar stöðugar (e. outlook stable). Drifkraftar hækkunarinnar eru einkum stöðugleiki efnahagslífsins, batnandi ytri staða þjóðarbúsins og skuldalækkun hins opinbera ásamt öflugum hagvexti. |
|||
|