2008-05-09 13:46:59 CEST

2008-05-09 13:47:57 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
FL GROUP hf. - Fyrirtækjafréttir

Kauptilboð til hluthafa


Á hluthafafundi FL Group hf. sem haldinn var föstudaginn 9. maí. 2008 kl. 8.30
voru eftirfarandi tillögur stjórnar samþykktar. Hluthafar sem fara með rúmlega
84% hlutafjár voru mættir til fundarins. 

1. Tillaga um að stjórn félagsins verði falið að óska eftir skráningu
hlutabréfa félagsins úr OMX Nordic Exchange á Íslandi. 

Tillagan var samþykkt með 99,86% greiddra atkvæða.

2. Tillaga um að stjórn félagsins verði falið að kaupa hluti þeirra hluthafa í
félaginu er þess óska fyrir 21. maí 2008. Greitt verði fyrir hlutina með hlutum
í Glitni banka hf. Gengi hlutabréfa í FL Group hf. við kaupin skal vera kr.
6,68 fyrir hvern hlut. Gengi hlutabréfa í Glitni banka hf. skal vera kr. 17,05
fyrir hvern hlut. Þannig fær hver hluthafi er tekur kauptilboðinu 0,39 hluti í
Glitni banka hf. fyrir hvern hlut í FL Group hf. 

Tillagan var samþykkt.

3. Tillaga um að stjórn félagsins verði heimilað í tengslum við framangreind
kaup á hlutabréfum í FL Group hf. að kaupa allt að 20% eigin hluta fyrir kr.
6,68 hvern hlut. Heimildin skal gilda til og með 20. júní 2008. Verði eigin
hlutir í eign félagsins umfram 10% eftir viðskiptin skal stjórn félagsins lækka
hlutafé félagsins, í samræmi við ákvæði laga um hlutafélög, þannig að eigin
hlutir eftir slíka hlutafjárlækkun verði ekki umfram 10% af hlutafénu. 

Tillagan var samþykkt.

4. Tillaga um að stjórn félagsins verði heimilað, í því skyni að mæta
framangreindum kaupum á hlutum í FL Group hf. að kaupa allt að 862.017.533
hluti í Glitni banka hf. fyrir kr. 17,05 hvern hlut og greiða fyrir með
lántöku. 

Tillagan var samþykkt


Stjórn FL Group hefur því gert hluthöfum FL Group kauptilboð í samræmi við
samþykktar tillögur hluthafafundar. Kauptilboðið tekur gildi til 9. maí 2008
kl. 10.00 og rennur út 21. maí 2008 kl. 16:00. Samantekt á skilmálum
kauptilboðs, sem verður sent hluthöfum í pósti á skráð lögheimili þeirra, er í
viðhengi. 


Nánari upplýsingar
Þjónustuver Glitnis mun veita frekari upplýsingar um kauptilboðið alla virka
daga í síma 440 3725, milli kl. 8:00 og 19:00 meðan tilboðið gildir.