|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2020-01-21 11:44:38 CET 2020-01-21 11:44:38 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsArion banki: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 3 keypti Arion banki eigin hluti á Nasdaq á Íslandi og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan. Endurkaup á hlutum á Nasdaq Ísland voru eftirfarandi:
Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
Um er að ræða viðskipti í samræmi við endurkaupaáætlun bankans sem var hrint í framkvæmd þann 31. október sl., sbr. tilkynningu til beggja kauphalla þann 31. október 2019. Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 3 samtals 47.214.966 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 3 samtals 53.577.339 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,95% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að núverandi endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 43.256.629 hluti og 9.990.418 heimildarskírteini. Samkvæmt endurkaupaáætlunum bankans verða að hámarki keyptir 59.000.000 hluti/SDR, sem samsvarar 3,25% af útgefnum hlutum í bankanum. Gert er ráð fyrir að kaupa allt að 11.800.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,65% af útgefnum hlutum og allt að 47.200.000 hlutum á Íslandi, sem samsvarar 2,6% af útgefnum hlutum. Fjárhæð endurkaupanna skal að hámarki nema 900.000.000 kr. í Svíþjóð og 3.600.000.000 kr. á Íslandi (samtals 4,5 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu er náð eða í síðasta lagi 17. mars 2020. Bankastjóri Arion banka hefur heimild til að stöðva áætlunina hvenær sem er á tímabilinu. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, framseld reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8 mars 2016. Nánari upplýsingar veitir Theodór Friðbertsson, forstöðumaður fjárfestatengsla Arion banka, ir@arionbanki.is, sími 856 6760. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|