|
|||
2016-10-04 12:06:46 CEST 2016-10-04 12:06:46 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf.: Leiðrétting - Niðurstaða víxlaútboðsLeiðrétting: Verð víxla leiðrétt frá fyrri tilkynningu Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á tveimur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki, LBANK 170310 og nýjum flokki, LBANK 170410. Heildartilboð í útboðinu námu 4.640 m. kr. Tilboðum var tekið í flokki LBANK 170310 að fjárhæð 720 m. kr. á 5,75% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,6450 og í flokki LBANK 170410 að fjárhæð 1.680 m. kr. á 5,79% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,1561. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. október 2016. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar. [] |
|||
|