|
|||
2022-12-02 15:29:00 CET 2022-12-02 15:29:03 CET REGULATED INFORMATION Origo - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hlutaOrigo hf. - Lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafaÁ hluthafafundi Origo hf. þann 1. desember 2022 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins með greiðslu til hluthafa. Samþykkt var að lækka hlutafé félagsins úr kr. 435.000.000 í kr. 140.000.000. Lögboðin skilyrði fyrir framkvæmd hlutafjárlækkunarinnar eru nú fyrir hendi þar sem fyrirtækjaskrá hefur veitt félaginu undanþágu frá innköllunarskyldu, sbr. 2. mgr. 53. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Lækkunin nemur kr. 295.000.000 að nafnverði. Lækkunarfjárhæð sem er umfram nafnverð, eða kr. 23.705.000.000 mun verða færð til lækkunar á óráðstöfuðu eigin fé. Samtals verða því kr. 24.000.000.000 greiddar til hluthafa hlutfallslega í samræmi við hlutafjáreign þeirra í félaginu í lok dags 8. desember 2022. Síðasti viðskiptadagur með réttindum til útgreiðslu vegna lækkunar hlutafjár er því þriðjudagurinn 6. desember 2022. Framkvæmd útgreiðslunnar verður eftirfarandi:
Hér á eftir fara nánari upplýsingar varðandi dagsetningar sem tilgreindar eru í framkvæmd lækkunar hlutafjár. Ex-dagur - 1* - Síðasti viðskiptadagur
Réttindaleysisdagur (Ex-dagur)*
Viðmiðunardagur
Lækkunardagur/Greiðsludagur
*Hér er miðað við að viðskipti séu gerð upp m.v. T+2 regluna. Nánari upplýsingar veitir Gunnar Petersen, Fjármálastjóri Origo hf. í netfangi gp@origo.is eða gsm 825 9001 |
|||
|