2014-04-16 18:04:43 CEST

2014-04-16 18:05:44 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs mars 2014


629 eignir seldar frá áramótum

Íbúðalánasjóður hefur selt 629 eignir á fyrstu þremur mánuðum þessa árs. Á sama
tímabili í fyrra hafði sjóðurinn selt 36 eignir. Inni í þessari tölu eru
rúmlega 500 íbúðir sem seldar voru til leigufélagsins Kletts. Auk þessara 629
hefur sjóðurinn samþykkt kauptilboð í 93 eignir til viðbótar og vinna nú
tilboðshafar að fjármögnun. Í sölumeðferð eru 1.028 eignir, flestar þeirra eru
þegar komnar á sölu hjá fasteignasölum en verið er að leggja lokahönd á
söluskráningu allra eigna sem hægt er að söluskrá. Íbúðalánasjóður er með 919
íbúðir í útleigu um land allt. 

Í lok mars nam fjárhæð vanskila útlána til einstaklinga 4,3 milljörðum króna og
var undirliggjandi lánavirði 65,3 milljarðar króna eða um 10,19% útlána
sjóðsins til einstaklinga, samanborið við 13,18% í mars 2013. 

Greiðslur Íbúðalánasjóðs vegna íbúðabréfa og annarra skuldbindinga námu 7,9
milljörðum króna í mars. Uppgreiðslur námu 2,4 milljörðum króna samanborið við
1,8 milljarða í febrúar. Þessi aukning milli mánaða skýrist fyrst og fremst af
uppgreiðslum lögaðila.