|
|||
2024-05-06 17:40:00 CEST 2024-05-06 17:40:03 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarIcelandair: Yfir ein milljón farþega á fyrstu fjórum mánuðum ársinsHeildarfjöldi farþega Icelandair var 307 þúsund í apríl, 4% fleiri en í apríl 2023. Það sem af er ári hefur félagið flutt meira en eina milljón farþega. Í mánuðinum voru 27% farþega á leið til landsins, 17% frá landinu, 49% voru tengifarþegar og 7% ferðuðust innanlands. Framboð jókst um 11% frá apríl á síðasta ári og farþegaflutningar mældir í tekjufarþegakílómetrum jukust um 8%. Sætanýting var 81% og stundvísi var 88,3%, 7,8 prósentustigum hærri en í apríl 2023. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair: Í maí kynnum við þrjá nýja sumaráfangastaði. Þann 1. maí hófum við flug til Færeyja og síðar í mánuðinum hefjum við flug til Pittsburgh og Halifax.“ |
|||
|